Sunday, February 3, 2013

GLIMMER NEGLUR

Glimmer er klárlega málið í naglalakkatískunni í dag. Ótrúlega flott að nota einn lit í grunninn og svo annan lit af grófu glimmer lakki ofan á. Til að hafa grunninn látlausan er sniðugt að nota nude eða drapplitað lakk undir. Fyrir þær sem eru ekki til í allt of mikinn glamúr getur líka verið flott að hafa eina glimmer nögl á sitt hvorri hendinni. Það eru allavega ótrúlega margir möguleikar því það er hægt að fá glimmer lökk í allskonar litum og gerðum.














 Svona er hægt að búa til sitt eigið glimmer lakk

Vandamálið við glimmer naglalökk eru að það er algjört pain að ná þeim af, hér er aðferð til að ná því af á auðveldan hátt.

Saturday, February 2, 2013

DIY: KEÐJUARMBÖND

Hér eru leiðbeiningar hvernig á að gera flott keðjuarmbönd. Þau henta ótrúlega vel til að blanda með öðrum armböndum og hægt að gera þau í allskonar litum.

Fengið af blogginu SwellMayde



Hér sjást þau með öðrum armböndum. 
Krossaarmbandið er hægt að kaupa hér
Multi spikes gaddaarmbandið er hægt að kaupa hér


Friday, February 1, 2013

MAKKARÓNUR

Ég er með æði fyrir makkarónum, svo litlar og sætar og ótrúlega ljúffengar. Þetta er samt ekki eitthvað sem maður gúffar í sig, meira svona trít á góðum degi :) Ég fór í Kökuhúsið í Kópavogi í dag og keypti mér nokkrar. Mæli með þessu bakaríi, þau eiga vanalega til makkarónur með mismunandi brögðum og líka ótrúlega flottar cupcakes, keypti mér einmitt eina rósacupcake með glimmeri. Fyrir þá sem eiga ekki leið um bakaríið þá er Hagkaup að selja franskar makkarónur frosnar, alveg þess virði að prófa.

Þær voru svo sætar að ég varð að taka mynd. 
Þessar eru jarðaberja, mokka og vanillu!






Ladurée bakaríið í París er frægt fyrir makkarónurnar sínar.




TGIF


Indæll föstudagur runninn upp! 
Njótið dagsins

Tuesday, January 29, 2013

TREND: STATEMENT HÁLSMEN


Þessi hér munu bókað vekja athygli og eru t.d. fullkomin við árshátíðardressið!

Efri röð frá vinstri:
BIB hálsmen, 2.490 kr (fæst einnig í hvítu og bleiku)
CHAINED hálsmen, 1.790 kr

Neðri röð frá vinstri:
DRAMA hálsmen, 1.990 kr
TWO-TONED CHAINS hálsmen, 1.990 kr (fæst einnig í gulu)

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...