Friday, December 28, 2012

MAKEUP SKIPULAG

Ég tók til inná baði hjá mér um jólin og fór í gegnum allar snyrtivörurnar mínar, sem eru nú reyndar ekkert mjög margar. Þær voru svo illa skipulagðar að ég var að finna sumt sem ég mundi ekki eftir að eiga, og voru þar á meðal nokkrir hlutir ennþá í pakkningunni. Ég þurfti því að skipuleggja þetta aðeins betur...



Þetta glæra plastbox er úr Rúmfatalagernum og kostar 2.495 kr. Ég keypti það fyrir nokkrum mánuðum og ætlaði alltaf að nota það fyrir hluta af skartinu mínu en það hentar mjög vel fyrir snyrtivörurnar. Stærri hluti eins og meik o.þ.h. geymi ég annars staðar, og svo geymi ég stóra bursta í glasi.



Þetta varalitabox fékk ég í skóinn frá kærastanum, það fæst í Söstrene Grene. Ótrúlega sniðugt, hafði einmitt séð það á VeniVidiVisa blogginu og setti það á óskalistann : )


Hér eru fleiri hugmyndir að flottu make-up skipulagi...



Snilldaraðstaða fyrir make-up fíkla

Þetta fæst í Ikea

Svona box fæst í Söstrene Grene





-Hildur

Monday, December 24, 2012

Sunday, December 23, 2012

Wednesday, December 19, 2012

LÍTIÐ OG SÆTT Í JÓLAPAKKA

Stundum vantar manni eitthvað lítið og fallegt til að bæta í jólapakkann, hér eru nokkrar hugmyndir að sniðugum hlutum undir 1.000 krónum.

Fáðu pakkann örugglega fyrir jólin! Minnum þær sem eru á landsbyggðinni að síðasti séns er að panta og greiða fyrir kl. 21 í kvöld (19. des). Við munum þó keyra út pantanir á höfuðborgarsvæðinu alveg fram til hádegis á aðfangadag :)


Fást í rauðu, hvítu og leopard

Fást í silfur og gull 
Sjá meira úrval af hárskrauti hér

Fæst með peace merki, hjarta og lykli

 
Fæst í svörtu, hvítu, appelsínugulu og bláu

Fást í silfur og gull

Fæst í silfur og gull

Fæst í svörtu, gull, og gull/svörtu

Fást í metallic silfur, metallic gull, floral, red leopard og gylltu tiger

3 stk í pakka, svört, hvít og húðlituð

Fást í túrkis, grænu og kremuðu


Kíkið á allt úrvalið á www.velvet.is

FASHION VS STYLE


Tuesday, December 18, 2012

NAILPOLISH

Jæja þá er ég loksins komin aftur til lífsins eftir eina af verstu og lengstu prófatörnum lífs míns. Ég hélt að ekkert myndi einu sinni koma nálægt viðbjóðnum sem stúdentspróf MR voru en þetta var ansi nálægt því....

En OK, þar sem ég er hinn allra versti naglalakkafíkill ætla ég að henda hérna inn nokkrum af mínum uppáhöldum!
Ég hef ekki getað keypt mér naglalökk í dálítið langan tíma því ég er að drepast úr tómri buddu en góði guð láttu 2013 vera naglalakkaár Sigríðar Elfu. Plís.




Þessi þrjú koma (held ég) úr einhverri jóla línu Nails inc ásamt tveimur öðrum, rauðu og fjólubláu. 
Þau eru öll svona glimmer, glans, gordjöss og ég elska þau. 
Við vinkonurnar eigum næstum því allar þennan pakka og okkur finnst ekkert skemmtilegra en að setja þetta efsta saman með því neðsta. ÞAÐ ER GEÐVEIKT.
Þessi snilldar pakki kom víst aftur fyrir þessi jól og fæst í Debenhams.



James Bond línan frá OPI - hin mikla snilld.
Hef bloggað áður um þetta neðra, The Living Daylights.
Jólasveinninn kom svo með þetta efra handa mér eina nóttina (já ég fæ ennþá í skóinn), Goldeneye, og ég get ekki beðið eftir að prófa það og setja kannski gyllt glimmer yfir, eða bara The Living Daylights!! Mig klæjar í puttana ég er svo spennt!


Eina lakkið mitt úr Muppets línunni frá OPI - excuse MOI!
Ég get set þetta yfir næstum því öll lökk og það klikkar aldrei !


Kardashian Kollection frá Nicole by OPI - Hard-Kourt fashionista heitir það
Dökkbrúnt og algjört must have. Meira að segja mamma elskar það!
Hef sett excuse MOI! að ofan yfir þetta og það var alveg mega. Var fyrst ekki alveg viss en þessi glimmer kunna bara ekki annað en að vera geðveik!


Classic.... nota þetta ótrúlega mikið


Last But Not Least..
Þetta var ást við fyrstu sýn. 400 kall í sumar og þetta gerir hvaða lakk sem er ennþá betra.
Að setja þetta yfir svart er to die for. Næstum því eins og chanel bara.

-Sigga
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...