Showing posts with label TÍSKA. Show all posts
Showing posts with label TÍSKA. Show all posts

Tuesday, November 26, 2013

TOP KNOTS

Einföld og flott hárgreiðsla, fullkomin á "slæmum hárdegi". Háir snúðar geta verið tjásulegir og henta þá betur hversdags. Þeir geta líka verið fínni, ef maður vandar sig aðeins meira, og þá er þá tilvalið að láta áberandi eyrnalokka njóta sín við uppsett hárið.




 Hár donutinn er snilld til að gera flottara form á snúðinn.
Hann er á 790 kr og fæst hér: www.velvet.is/products/donut-harhringur


Saturday, November 23, 2013

HAUSTNEGLUR

Á veturna verður naglalakkatískan dekkri en litirnir eru þó nokkuð fjölbreyttir. Haustlökkin koma t.d. í gráum, brúnum, vínrauðum, dökkbláum og dökkgrænum tónum ásamt gylltu og silfruðu. Að sjálfsögðu er rauður alltaf klassískur, óháð árstíðinni. Hér má sjá nokkrar hugmyndir að flottum haustnöglum.











Sunday, June 9, 2013

HVÍTAR NEGLUR

Mér finnst hvítar neglur svo sumarlegar, og fara líka einstaklega vel með brúnni húð. Hvítt naglalakk er að mínu mati möst-have í sumar...



Tuesday, April 16, 2013

PASTEL SUMAR

Sumarið er rétt handan við hornið, sumardagurinn fyrsti eftir rúma viku og veðrið að hlýna! Uppáhalds árstíminn að ganga í garð ... svo þægilegt að vera léttklædd í stað þess að klæða sig í mörg lög af fötum. Ég á það líka til að vera aðeins of svartklædd á veturnar og þá er gott að fá sumar með allskonar litum, hvort sem það eru sterkir litir eða pastel litir :) 
Hérna eru nokkur sumarleg lúkk í frekar mildum pastel litum sem láta mig dreyma um sumar og sól...











Fullt af sumarlegu skarti og sólgleraugum mætt inn á www.velvet.is
og enn meira á leiðinni í byrjun maí!

Thursday, February 21, 2013

MATTAR NEGLUR

Mattar neglur eru ótrúlega töff trend, en til þess þarf ekki að eiga matt lakk í hverjum lit heldur er einfaldlega hægt að kaupa matt yfirlakk. Mikil snilld að geta breytt áferðinni á litunum fyrir svo lítið sem 590 kr með möttu yfirlakki héðan.

 
 


Matta lakkið er líka hægt að nota til að búa til mynstur með sama litnum - fínt ef maður fílar ekki alltof áberandi neglur.





Sunday, February 3, 2013

GLIMMER NEGLUR

Glimmer er klárlega málið í naglalakkatískunni í dag. Ótrúlega flott að nota einn lit í grunninn og svo annan lit af grófu glimmer lakki ofan á. Til að hafa grunninn látlausan er sniðugt að nota nude eða drapplitað lakk undir. Fyrir þær sem eru ekki til í allt of mikinn glamúr getur líka verið flott að hafa eina glimmer nögl á sitt hvorri hendinni. Það eru allavega ótrúlega margir möguleikar því það er hægt að fá glimmer lökk í allskonar litum og gerðum.














 Svona er hægt að búa til sitt eigið glimmer lakk

Vandamálið við glimmer naglalökk eru að það er algjört pain að ná þeim af, hér er aðferð til að ná því af á auðveldan hátt.

Saturday, January 5, 2013

FRESH OUT OF IDEAS?

NEGLUR


x


x


x


x


x

OPI - the world is not enough.

Þetta er kannski ekki allt geranlegt, en hægt að prófa. Ótrúlega fallegt.


AUGU



x


Ætla að gera tilraun til þess að gera þetta neðra fyrir kvöldið. 
I BELIEVE IN ME

-Sigga
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...