Showing posts with label SKARTGRIPAGEYMSLA. Show all posts
Showing posts with label SKARTGRIPAGEYMSLA. Show all posts

Saturday, October 11, 2014

SKARTGRIPAHIRSLUR

Það er nauðsynlegt að geyma skartgripina sína á góðum stað svo það fari vel um þá og þeir endist lengur, t.d. passa að þeir séu ekki í sólarljósi, miklum raka og þess háttar. Maður sér líka miklu betur skartið sem maður á þegar það er fallega uppsett.
Það er ágætt úrval hér á landi af skartgripahirslum, m.a. í Rúmfatalagernum, Tiger og svo hefur Tekk Company verið með gott úrval af skart hirslum, sem eru þá aðeins í dýrari kantinum. Hér er lítið brot af hentugum hirslum sem geta verið hentugar.


BOCANO plastbox, 2.495 kr í Rúmfatalagernum
Þetta fer einstaklega vel með skartið því það er motta ofan í skúffunum sem verndar það fyrir hnjaski. Boxið hentar líka sem make-up hirsla, en ég tók motturnar úr mínu fyrir make-upið. 

ALFTA skartgripatré, 995 kr í Rúmfatalagernum
Þetta er úr glæru plasti. Á enda greinanna eru göt fyrir eyrnalokkana, og svo er boxið neðst tilvalið til að geyma hringi.

 MALPASO skartgripahengi, 1.495 kr í Rúmfatalagernum
Þessi hirsla tekur gott magn af skarti.

Þessi armbandastandur er frá Föndurlist í Holtagörðum. Einnig er hægt að finna álíka standa á Ebay. Þessir fara vel um armböndin en það er hægt að geyma ansi mörg á standinum.

Thursday, November 21, 2013

HORN UNDIR SKARTIÐ

Okkur þykir alls ekki leiðinlegt að finna hugmyndir að sniðugum lausnum til að geyma skartið. Hér er eins nokkuð töff lausn - að hengja hálsmenin á dýrahorn uppi á vegg.



Hér er hægt að skoða fleiri sniðugar geymsluhugmyndir fyrir skartið sem við höfum bloggað um áður:

Tuesday, September 17, 2013

GEYMDU SKARTIÐ UPPI Á VEGG

Við erum búin að vera að sýna ykkur alls konar hugmyndir til að geyma skartið, og nú er komið að því að sýna ykkur hvernig hægt er að hengja skartið upp á vegg og ramma það inn! Þetta er t.d. tilvalið að gera við flottustu hálsmenin og láta þau því vera veggskraut í leiðinni.










Hér má sjá fleiri geymslur undir skartið sem við höfum bloggað um áður.

Monday, September 9, 2013

SKARTIÐ GEYMT Í SKÚFFU

Skartgripir geta verið viðkvæmir og því borgar sig að hugsa vel um þá. Best er að geta geymt þá í skúffum, en fataherbergin hjá ríka fólkinu eru oft með sérstökum skúffueiningum sérstaklega sniðnar fyrir dýru skartgripina. Með því að geyma skartið í skúffum þá er auðveldlega hægt að sjá hvað maður á, í stað þess að skartið sé einhvers staðar í hrúgu.





Hér má sjá fleiri hugmyndir til að geyma skartgripina, sem við höfum bloggað um áður.


Friday, June 14, 2013

SKART Á KÖKUSTANDI

Mér leiðist ekki að skoða sniðugar leiðir til að geyma skartið mitt. Ef þú ert eins og ég, og átt alltof mikið af skarti (þó maður eigi eiginlega aldrei nóg), þá hefurðu komist að því að skartið þarf að geyma skipulega ætli maður að láta fara vel um það og finna það þegar maður þarf á því að halda. Ég hef fundið sniðuga hugmynd á netinu, að nota kökustand eða cupcake stand til að geyma t.d. armbönd, hringi og úr.







Þessi fæst í IKEA og kostar 2.990 kr:



Hér geturðu skoðað fleiri hugmyndir af skartgripageymslum sem við höfum bloggað um áður:

Friday, November 16, 2012

SKARTGRIPADISKUR

Við fáum ekki nóg af sniðugum hirslum, skálum og hengjum fyrir skartgripi. Þegar maður á fullt af glingri þá þarf allt að eiga sinn stað. 


Fallegur diskur sem skipuleggur hringina, úrin og armböndin.

-Hildur

Tuesday, November 6, 2012

SKARTGRIPAGEYMSLUR

Eins og gefur að skilja eigum við ótrúlega mikið af skarti sem þarf allt að eiga sinn stað svo vel fari um það. Það er til ótrúlega mikið af flottum skartgripastöndum, Tekk Company er t.d. með ágætt úrval af flottum stöndum, einnig Rúmfatalagerinn. Við erum búnar að finna ýmsar hugmyndir til að geyma skart, margar hverjar kosta alls ekki mikið.

Glerflöskur fyrir armböndin - algjör snilld.

Gömul hrífa getur geymt fjölda hálsmena

Hægt er að geyma hringi og armbönd á fallegum bökkum

Sniðugt að hólfa skúffur niður fyrir belti, sólgleraugu, klúta og alls konar fylgihluti.

Hér er cupcake standur notaður inni á baði, en hann gæti alveg eins verið jafn sniðugur fyrir skartið.

Kúptar flöskur geta geymt falleg hálsmen

Hér eru notaðar skálar, vínflöskur og annað til að stafla skartinu á

Sniðug hugmynd að krækja eyrnalokkum í götótt efni í fallegum myndaramma

Snagar á vegg er einföld en ódýr leið til að geyma hálsmen og fleira

Trjágreinar festar við myndaramma, sem hægt er að mála í einhverjum fallegum lit

Lumið þið á einhverjum sniðugum skart geymslu hugmyndum?? :)

-Hildur
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...