Tuesday, December 4, 2012

NAILS #2

Ég er í prófum og væntanlega ekki að læra. Ég lét mömmu fá tölvuna mína, voða sniðug, en fattaði svo að það er til blogger app sem ég get notað til að blogga og þetta er frumraun mín í því appi!
Ég er algjör svindlari ég veit..

En ég var semsagt að lakka mig með nýjasta uppáhaldinu mínu frá OPI, The living daylights úr James Bond línunni, og er frekar sátt með það! (sjá myndir að neðan)

Finnst ykkur þetta ekki GORG??
Ég klára svo hinar neglurnar í næstu pásu sem verður líklegast eftir korter ef ég þekki mig rétt.

Prófa kveðja, Sigga!







MAGIC BRA STRAP

Brjóstahaldaraklemman er snilldarvara sem við erum að selja. Þetta eru klemmur sem eru settar á brjóstahaldaraböndin að aftan til koma í veg fyrir að böndin sjáist þegar klæðst er bolum sem koma í kross að aftan, sem og að veita brjóstunum lyftingu! Það er einnig sniðugt að nota þær til að forðast það að böndin séu að leka af öxlunum. Klemmurnar dreifa álaginu og leiða því til betri líkamsstöðu.

Klemmurnar koma þrjár saman í pakka, svört, hvít og húðlituð, og kosta allar saman aðeins 590 kr.





Monday, December 3, 2012

MÁNUDAGSSPEKIN


Það er aldrei of seint að verða manneskjan sem manni langar til að verða og
aldrei of seint að láta drauma sína rætast!

Sunday, December 2, 2012

PINTEREST

VELVET er á Pinterest! Followaðu okkur ef þú hefur áhuga á...

  • flottu skarti
  • hugmyndum hvernig þú getur skipulagt fylgihlutina þína
  • hárgreiðslum
  • fallegri förðun
  • naglatrendum
  • alls konar DIY verkefnum
  • hugmyndum fyrir heimilið og fataskipulagningu
  • girnilegum mat og sætindum
  • jákvæðri speki
  • jólahugmyndum



Okkur þykir voða gaman að deila með ykkur hugmyndunum sem við höfum safnað á Pinterest og munum halda því áfram hér á blogginu :)

Saturday, December 1, 2012

SINGLE TRIANGLE

Þríhyrningar eru mjög mikið í tísku í skartinu í dag, bæði margir saman líkt og á bunting hálsmenunum okkar, en líka sem einn þríhyrningur. Hér eru nokkur flott þríhyrningahálsmen sem komu með nýju sendingunni, fullkomin til að nota hversdags við einfaldan bol!



Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...