Thursday, June 13, 2013

TREND: INFINITY

Infinity, merki óendanleikans, er táknað með áttu og er búið að vera stórt trend í skarti undanfarið. Það hefur einnig verið vinsælt sem tattú enda hefur óendanleikinn táknræna þýðingu. Við elskum þetta trend og höfum verið að taka inn nokkrar týpur af infinity skarti upp á síðkastið. Hér má sjá hvernig þetta lúkkar...






INFINITY trendið hjá VELVET:

THIN INFINITY hringur, 790 kr stk.

 INFINITY hringar (2 í pk), 990 kr

INFINITY armband, 990 kr


Wednesday, June 12, 2013

SÓLGLERAUGNAGEYMSLUR

Við eigum flestar nokkuð mörg sólgleraugu til skiptana og þá getur verið vesen að geyma þau þannig það fari vel um þau og þau séu sjáanleg þegar maður þarf að velja úr. Hér eru tvær sniðugar, hagvæmar og smekklegar leiðir til að geyma gleraugun.



Vantar þig fleiri í safnið? 
Kíktu á úrvalið:

Monday, June 10, 2013

FLAT TOP SÓLGLERAUGU

Stjörnur á borð við Amber Rose, Beyonce og Kim Kardashian hafa sést með svokölluð flat top sólgleraugu á nefinu en þau eru með flatri umgjörð að ofan. Þessi sólgleraugu verða svöl á heitum dögum í sumar.






FLAT TOP sólgleraugu frá VELVET á aðeins 1.990 kr:


Minnum á að það er FRÍR sendingarkostnaður hjá okkur!

Sunday, June 9, 2013

HVÍTAR NEGLUR

Mér finnst hvítar neglur svo sumarlegar, og fara líka einstaklega vel með brúnni húð. Hvítt naglalakk er að mínu mati möst-have í sumar...



Saturday, June 8, 2013

DIY: FLÉTTUARMBAND

Það eina sem þarf til að gera fléttuarmband er keðja, festingar og töng, eða tilbúið keðjuarmband fyrir þá sem nenna ekki að búa til armbandið sjálfir. Svo þarf einnig bómullargarn í þeim lit sem hver og einn velur. T.d. er hægt að blanda saman þremur pastel tónum og flétta saman, neon litum eða hafa fléttuna einlita. Mjög einföld leið til að búa til persónulegt skart þar sem hægt er að ráða litasamsetningunni sjálfur.










Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...